Vorhreingerning
- Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir

- Apr 12
- 1 min read
Einhverntímann tekur allt enda!
Kæru póstlista fólkið mitt!
Stundum kemur að því að maður horfir yfir hlutina sína — og áttar sig á því að það er kominn tími á smá tiltekt, og nú er vorhreingerning hjá mér í allskonar hlutum og þið fáið að heyra af einni þeirra hér í þessum pósti.
Núna er ég komin á þann stað að eitt af netföngunum mínum fær að ljúka sínu hlutverki því það að vera með átta nteföng er hreinlega of mikið og ekki síst hreinn aukakostnaður. Ég mun því á næstunni loka netfanginu asta@hverereg.is.
Það er alltaf svolítið sérstakt að kveðja eitthvað sem hefur þjónað manni vel. Þetta netfang hefur fylgt mér í samskiptum, viðskiptum, allskonar verkefnum og góðum tengingum í gegnum tíðina eða alveg frá því árinu 2014, og því fylgir því smá eða kannski bara heilmikill tregi að sleppa takinu. En stundum þarf einfaldlega að einfalda lífið — og halda áfram aðeins léttari ekki satt?
Hvernig gangur annarss 2026 hjá þér, ertu að fylgja því sem árið bauð þér upp á? Á að skella sér í smá vorhreingerningu bráðlega?

Nýtt netfang
Framvegis náið þið best í mig á gamla góða netfanginu mínu: asta73@yahoo.com.
Heimasíðan mín www.hverereg.is mun ekki loka og allt vera eins og áður en aðeins þetta fallega netfang mitt fær að fjúka.
Takk fyrir að fylgja mér, lesa þessa pósta, stundum svara þeim og vera hluti af ferðalaginu. Haltu áfram að fylgja þínu hjarta því það veit allt það besta fyrir ÞIG!
Hlýjar kveðjur, Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir






Comments